Síðan hennar Magneu

Freedom has a scent Like the top of a new born baby’s head

13 október 2006

Pissað í koppinn

Halló

Eyrún mín pissaði í koppinn í morgun, mér til mikillar ánægju. Við erum búnar að eyða svo miklum tíma í að sitja á koppnum og ekkert komið. Svo hefur hún hlaupið fram og... Pissað, ekki í koppinn. Það hefur bara ekkert farið í klósettið né koppinn frá því hún pissaði í klósettið á páskadagsmorgun, 16. apríl s.l.

Enn í morgun kom hún uppí til mín og ég fann að það var ekkert komið í bleyjuna og því stakk ég upp á því að við færum inn á kósett að pissa. Hún var til í það svo lengi sem hún mætti taka með bók, skrítið :)
Hún var ekki búin að sitja lengi þegar hún setur upp stór augu og við heyrum bununa buna í koppinn og ekkert smá, bara öll morgunbunan. Hún var svo stolt og ánægð og mamma hennar líka. Ég vona innilega að hún sé nú að fara hætta þessu bleyjuveseni.

Svo fór hún syngjandi kát í leikskólann :)

Bestu kveðjur
Magnea

05 október 2006

Mamma á afmæli í dag :)

Halló

Mamma mín á afmæli í dag, innilega til hamingju með daginn elsku mamma.

Svo átti Silla vinkona afmæli í fyrradag (2. okt) og við segjum ekki upphátt hvað hún varð gömul ;)

Dóttir mín lagði hressilega inn á þolinmæðisbankareikninginn sinn í gær. Hún er komin með nýtt uppáhaldslag, lagið um fingurna.

Vísifingur, vísifingur hvar ert þú.
Hér er ég, hér er ég,
góðan daginn daginn daginn.

Langatöng, langatöng hvar ert þú.
Hér er ég, hér er ég,
góðan daginn daginn daginn.

Ég var að skipta á henni og klæða hana og við sungum saman voða gaman. Svo var hún tilbúin og ég sagði við hana að fara fram til pabba og syngja fyrir hann og hún hljóp fram. Vísitöng, vísitöng .....

Alveg dásamleg :)

03 október 2006

Komin heim aftur

Þá er ég komin heim aftur og er óskaplega syfjuð þessa daganna. Enn það hlýtur að lagast.

Það var óskaplega gaman úti, gaman að þvælast um í kringum Minneapolis sjá Bandaríska sveit og smá bæi. Alveg eins og í bíómyndunum. Við keyrðum um í 3 daga og fórum í nokkrar skrappbúðir sem voru flestar mjög skemmtilegar og mikið úrval. En ég stóðst margar freistingar og keypti bara fullt, enn ekki rosalega mikið ;)
Á milli skrappbúða fórum við líka í svona stórar búðir eins og Wallmart og K-Mart og þar var líka hægt að gera góð kaup.

Einnig var smá tíma eytt í Moll of Amerika sem mér fannst óskaplega skemmtilegt. Vel upp sett og margar skemmtilegar búðir. Ég þarf nauðsynlega að koma þangað aftur og þá helst með mömmu og Sillu sem eiga það sameiginlegt með mér að finnast gaman að labba í búðum. Einnig fórum við í Outlet í Albertville sem var mjög stórt og flott samsafn af fínum búðum sem voru að selja vörur á niðursettu verði. Ég gerði mjög góð kaup þarna t.d. í Sketser og Ecco voða gaman.

Ég hafði heyrt áður en ég fór að allt er stórt í USA. Það á mjög vel við skammtastærðirnar hjá þeim. Hver skammtur dugar fyrir tvo enn við föttuðum það aldrei að panta saman einn rétt. Fórum frekar að kaupa forrétt og eftirrétt og sleppa aðalrétti og það passaði vel :) Enn maturinn var líka nokkuð góður.

Hótelið var fínt og félagskapurinn góður. Við Jóna og Bubba höfðum það voða notalegt í okkar herbergi, nær aldrei kveikt á sjónvarpi, heldur eyddum við kvöldunum í að spjalla og skoða það sem við keyptum. Fjarlægja umbúðir og raða skrappdóti í box, rúllu upp borðum og tæta í sundur silkiblóm. Við erum ekkert miklir nördar nei nei

Ef ég kemst í tölvuna heima í kvöld þá skelli ég inn myndum.

Þangað til síðar
Bestu kveðjur
Magnea

29 september 2006

Kvedja fra Minneapolis :)

Hallo

Eg hef tad mjog svo gott herna i Minneapolis og skemmti mer konunglega. Vedrid hefur verid gott, baedi sol og lika rigning og trumuvedur en tad var allt i lagi tvi ta vorum vid bara i bilnum ad keyra.

Tad er buid ad skoda mikid skrapp og kaupa sma. Og sidan slatta af fotum og sliku.
'A morgun er svo Workshop og skrapp mania 'i fondurbudinni i Mollinu.

'Eg var bara ad uppgvota tessar tolvur adan og tvi setti eg inn sma, kem kannski aftur a morgun.

tar til sidar
Bestu kvedjur
Magnea

22 september 2006

Elmar og Eyrún í ágúst 2006.

Eyrún í gær, 21. sept 06

Jæja komin tími til

Halló

Eftir mikinn þrýsting frá sumum ;) þá Ákvað ég að reyna taka aftur upp skrif.

Eyrún mín syngur mikið núna, voða gaman og talar alveg fullt. Elmar byrjaður í skólanum á fullu og körfuboltanum. En núna þarf ég að rjúka og versla fyrir október fest sem verður í vinnunni í dag, ég bæti aftur við síðar í dag.

30 maí 2006

Eyrún að syngja með mömmu :)

Eyrún kom mömmu sinni mjög á óvart í gærkvöldi þegar hún var að fara sofa. Eins og venjulega pantaði hún söng frá mömmu (sú eina sem vill hlusta) og fyrst var pantað "dúkkan" og bara hlustað og svo koma Ava (vísur um afa sem fer á honum rauð, og býr á bakka þar sem hvít fiðrildi fljúga og sigga litla systir mjólkar ánna sína).

Svo tók ég Aridúadúadei, lagið um hann Jörund hundadagakonung og þá tók Eyrún undir fór að syngja með, alveg "deeiii" og trallað á milli. Mamman fékk bara tár í augun af stolti og svo var dúkkan pöntuð aftur og þar var líka trallað með og hún búin að læra nokkur orð í textanum.

Þannig að þetta kvöld lagði hún hressilega inn í þolinmæðisbankann.

Bestu kveðjur frá stoltri mömmu
Magnea

27 maí 2006

Eyrún litla lasin :/

Eyrún vaknaði um ellefu leitið gærkveldi og var komin með fullt af hita, um 39 gráður. Og það gekk illa að sofna aftur, sofnaði ekki fyrr en ég gaf henni stíl og svo svaf hún bara í fanginu á mömmu litla greyið.

Elmar mátti flýja úr pabbaholu til að fá svefnfrið og það gerði hann án þess að kvarta hann er svo þolinmóður og góður :)

Skemmtilegri fréttir af Haraldi, þeir ætla að leggja í hann yfir hafið á morgun, eru núna á leiðinni til Belfast og verða komnir þangað í fyrramálið og þá er bara versla orku fyrir bát og mannskap og leggja í hann :)

Bestu kveðjur
Magnea